Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Xiaomi 4 Ultra rafmagnshlaupahjól
SCOOTER4ULTRA




Xiaomi 4 Ultra rafmagnshlaupahjól
SCOOTER4ULTRAXiaomi 4 Ultra rafmagnshlaupahjólið er létt og samabrjótanlegt og er með 25 km/klst hámarkshraða, 70 km drægni, tvöföldu bremsukerfi, einstaklega góðum öryggisbúnaði og fjölvirku mælaborði.
Hönnun
Xiaomi 4 Ultra rafmagnshlaupahljólið er með þægilegum handföngum, vegur aðeins 24,5 kg og hægt er að brjóta það saman. Einnig hefur bremsan þann eiginleika að hlaða rafhlöðuna þegar bremsað er.
Kraftur
Rafmagnshlaupahjólið er 500 W (940 W hámarks kraftur) og með fjórum hraðastillingum: Walk Mode 5-6 km/klst, Drive Mode 5-20 km/klst, Sport Mode 0525 km/klst og S+ Mode 5-25 km/klst með meiri hröðun. Xiaomi 4 Ultra er með 70 km drægni.
Dekk
Stærri dekk, nú 10" sjálfþéttandi og slöngulaus loftdekk, sjá fyrir þægilegri ferð jafnvel á ójöfnum eða grófum yfirborðum, og springa síður.
Góð höggdeyfing
Höggdeyfing tryggir mýkri akstur á ójöfnu undirlagi.
Tvöfalt bremsukerfi
Með tvöföldu bremsukerfi, afturbremsu með trommubremsu og E-ABS frambremsu bremsar þú á öruggan og stuttan máta.
Xiaomi forrit
Skoðaðu áætlaða drægni, stöðu rafhlöðu, stilltu styrk á hleðslu rafhlöðunnar þegar bremsað er, læstu mótornum og fleira í Xiaomi forritinu.
Stærð og þyngd
- 24,5 kg að þyngd
- Hámarks burðargeta: 120 kg
Nokkur atriði sem þarf að passa upp á fyrir fyrstu notkun
- Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting í dekkjum og passa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um þrýsting, en oftast er miðað við 50 psi þrýsting. Ef ekki er nægt loft í dekkjum eykur það verulega líkur á að dekk springi.
- Farðu vel með rafhlöðuna á hjólinu. Það þarf að hlaða hjólið upp í 100% hleðslu áður en þú notar hjólið í fyrsta skipti. Ákjósanleg notkun á rafhlöðu er að hlaða hana áður en hún tæmist alveg. Einnig skal passa uppá að hlaða hjólið reglulega yfir vetrartímann eða þegar hjólið er ekki í reglulegri notkun til að lengja líftíma rafhlöðunnar.
Rafhlaða
Þegar rafhlaðan fer undir 30% og það hefur ekki verið kveikt á hlaupahjólinu í 10 daga, fer rafhlaðan í "Sleep Mode" til að auka líftíma.
Til að hámarka líftíma rafhlöðu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
- Ekki er mælt með að nota hjólið í mjög miklu frosti og ekki geyma hjólið yfir vetrartímann í óupphituðu húsnæði.
- Hlaða skal hjólið reglulega yfir vetrartímann þegar hjólið er í geymslu.
- Aldrei skal hlaða hjól á afviknum stað – mælt er með hleðslu þar sem umgangur er og hægt að hafa auga með hjólinu. Rafhlaða í hlaupahjólum er stór og öflug og getur stafað af henni eldhætta eins og með aðrar rafhlöður.
Höggskemmdir
Mikilvægt er að fara varlega við notkun á rafmagnshlaupahjólum, en hér eru nokkur dæmi sem geta orsakað höggskemmdir á þeim:
- Þegar keyrt er óvarlega upp á götukanta
- Þegar verið er að stökkva fram af götuköntum og/eða úr hæð (ef höggið er of mikið þá skemmast demparar og stýrið getur skemmst eða brotnað – rafmagnshlaupahjól eru ekki hönnuð til að stökkva á þeim eða gera kúnstir).
Ekki er mælt með því að nota rafmagnshlaupahjólið í rigningu. Passa þarf að hleðslutækið og innstunga séu þurr áður en hjól er sett í hleðslu.