Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Xiaomi Mi M365 PRO 2 rafmagnshlaupahjól - Svart
Farðu lengra með Xiaomi Mi M365 Pro 2 rafmagnshjólinu. Með 45km drægni, innbyggðum skjá með hraðamæli og fleiri upplýsingum, öflugum mótor með 300 W mótor (600 W hámarks kraftur). Auðvelt er að ganga frá hjólinu, tekur aðeins 3 sekúndur að pakka því saman. Sérstaklega meðfærilegt þar sem hjólið er einungis 14.2 kg. Öflugt ljós gerir hjólið öruggt að næturlagi.
Nokkur atriði sem þarf að passa upp á fyrir fyrstu notkun
- Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting í dekkjum og passa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um þrýsting, en oftast er miðað við 50 psi þrýsting. Ef ekki er nægt loft í dekkjum eykur það verulega líkur á að dekk springi.
- Farðu vel með rafhlöðuna á hjólinu. Það þarf að hlaða hjólið upp í 100% hleðslu áður en þú notar hjólið í fyrsta skipti. Ákjósanleg notkun á rafhlöðu er að hlaða hana áður en hún tæmist alveg. Einnig skal passa uppá að hlaða hjólið reglulega yfir vetrartímann eða þegar hjólið er ekki í reglulegri notkun til að lengja líftíma rafhlöðunnar.
Höggskemmdir
Mikilvægt er að fara varlega við notkun á rafmagnshlaupahjólum, en hér eru nokkur dæmi sem geta orsakað höggskemmdir á þeim:
- Þegar keyrt er óvarlega upp á götukanta
- Þegar verið er að stökkva fram af götuköntum og/eða úr hæð (ef höggið er of mikið þá skemmast demparar og stýrið getur skemmst eða brotnað – rafmagnshlaupahjól eru ekki hönnuð til að stökkva á þeim eða gera kúnstir).
Vatnsskemmdir
Ef það er verið að nota hjólin í mikilli bleytu þarf að gæta þess að þau fái að þorna inni í hlýju rými, þ.e. standi ekki úti og/eða í kaldri geymslu. Mikilvægt er að þurrka hjól áður en það er sett í hleðslu.
- Varast skal að keyra í polla og beita þarf almennri skynsemi þar sem hjólið er ekki vatnshelt.
- Eftir geymslutíma er mikilvægt að athuga loftþrýsting í dekkjum.
Rafhlaða
Rafhlaðan sérstaklega hitaþolin, með tvöfaldri vörn gegn ofhleðslu og hleðslutapi. Einnig eykur hjólið við notkun rafhlöðuendingu með því að nýta hreyfiorku hjólsins til að hlaða rafhlöðuna. Rafhlaðan endist í allt að 45km.
Til að hámarka líftíma rafhlöðu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
- Ekki er mælt með að nota hjólið í mjög miklu frosti og ekki geyma hjólið yfir vetrartímann í óupphituðu húsnæði.
- Hlaða skal hjólið reglulega yfir vetrartímann þegar hjólið er í geymslu.
- Aldrei skal hlaða hjól á afviknum stað – mælt er með hleðslu þar sem umgangur er og hægt að hafa auga með hjólinu. Rafhlaða í hlaupahjólum er stór og öflug og getur stafað af henni eldhætta eins og með aðrar rafhlöður.
Þráðlaus tenging
Tengdu hjólið með bluetooth og notaðu appið til að kveikja á því, uppfæra fastbúnað (firmware), fylgstu með drægni, rafhlöðuendingu, hraða og kveiktu á cruise control til að nýta rafhlöðuna til fulls.
Leiðbeiningar
Hér er hægt að skoða íslenskar leiðbeiningar um notkun hjólsins.