Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Xiaomi Mi TV Box S 2 Gen

MITVBOX4K2
Upplifðu nýjan heim af afþreyingu í sjónvarpið þitt með Xiaomi Mi Box S 2 Gen. Streymdu uppáhalds seríunum þínum og kvikmyndum, spilaðu uppáhalds leikina þína eða hlustaðu á útvarpið í frábærum mynd- og hljóðgæðum. Með HDR10+ og Dolby Vision verða myndgæði enn betri en fyrri kynslóð gat boðið upp á og með nýju Google TV stýrikerfi og átta kjarna Cortex-A55 örgjörva er Mi Box S 2 Gen hraðari í notkun.
4K HDR10+ upplausn
2GB RAM + 8GB minni
Bluetooth 5.2
Átta kjarna Cortex-A55 örgjörvi
Google Assistant, Chromecast
Google TV stýrikerfi
13.995 kr.
Upplýsingar

Með Xiaomi Mi Box S 2 Gen færðu einstaka upplifun í 4K UHD myndgæðum og skærum, kristaltærum litum þökk sé HDR10+ og Dolby Vision. Google TV stýrikerfið gerir þér kleift að tengjast á auðveldan hátt við uppáhalds miðlana þína og smáforrit og gefur þér jafnvel tillögur að myndböndum og þáttaröðum í samræmi við fyrri völ þín.

4K Ultra HD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.

HDR (High Dynamic Range)
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri (þarf að vera HDR sjónvarp).

Google Cast
Google Cast gerir þér kleift að spegla skjáinn þinn frá Android eða iOS snjalltækinu þínu yfir á sjónvarpsskjáinn þinn. Deildu myndum með vinum þínum, speglaðu vefsíður eða breyttu sjónvarpinu þínu í risastóran myndaramma.

Skemmtun fyrir alla
Mi Box S 2 Gen styður hundruð smáforrita. Horfðu á kvikmyndir á Netflix eða Hulu, spilaðu tónlist í gegnum Spotify eða Pandora, skoðaðu YouTube myndbönd, skipulegðu myndirnar þínar með Pixlr eða Lyve. Þú finnur eitthvað fyrir alla fjölskylduna og möguleikarnir eru endalausir.

Raddstýrð fjarstýring
Mi Box S 2 Gen kemur með raddstýrðri fjarstýringu svo það eina sem þú þarft að gera til að hefja leitina er að spyrja. Þú getur spurt um ákveðna seríu eða kvikmynd eða biddu Mi Box um að sýna þér bestu hasarmyndir síðasta árs.

Aðrir eiginleikar
- 4K dulkóðun við 60fps
- HDR 10+ og Dolby Vision
- Styður, DTS og Dolby hringóma hljómsnið
- 802.11a/b/g/n/ac, Dual-band WiFi

Í kassanum
- Xiaomi Mi Box S 2 Gen
- Raddstýrð Bluetooth fjarstýring
- HDMI snúra
- Leiðbeiningar

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
6971408157044
Framleiðandi
Xiaomi
Litur
Svartur
Geymslurými (GB)
8
Fylgihlutir í kassa
Fjarstýring, rafmagnssnúra, HDMI snúra, leiðbeiningar
Stærð (HxBxD)
1,7 x 9,5 x 9,5 cm
Þyngd (g)
142
Samanburður