Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Xiaomi Mi TV Stick
MITVSTICKUppselt

Xiaomi Mi TV Stick
MITVSTICKBreyttu hvaða snjallsjónvarpi sem er í Full HD afþreyingarstöð með Xiaomi TV Stick margmiðlunar- og streymispilara. Tengdu Xiaomi TV Stick með Micro USB, HDMI, Wi-Fi eða Bluetooth og horfðu á myndir, hlustaðu á tónlist eða spilaðu tölvuleiki í Full HD upplausn. Dolby & DTS veitir enn betri hljómgæði og með Android 9 er einfalt að nálgast allar gerðir af afþreyingarefni. Auðvelt er að nota Xiaomi TV Stick með innbyggðum Google Assistant talþjón.
Fyrirferðalítið
Auðvelt er að tengjast hvaða snjallsjónvarpi sem er með TV Stick. Notaðu Wi-Fi, Bluetooth, Micro USB eða HDMI tengi og njóttu afþreyingar í betri gæðum.
Dolby hljóðtækni
Dolby & DTS hringómahljómur eykur innlifun og gefur hljóði náttúrulegri burð um herbergið.
Android 9 stýrikerfi
Skoðaðu allt sem Android TV hefur upp á að bjóða. Fáðu tillögur um myndir, myndbönd, þætti, tónlist, leiki og fleira. Einnig er hægt að sækja snjallforrit fyrir Android með Google Play Store. Því meira sem þú kynnist Android TV, því meira munt þú njóta þess.
Google Assistant talþjónn
Eyddu minni tíma í að leita og meiri tíma í að njóta með Google Assistant talþjón. Talaðu við sjónvarpið þitt og láttu það finna fyrir þig efni sem þú vilt sjá eða fá tillögur um skemmtilegt efni. Til dæmis gætir þú beðið talþjóninn um að finna bestu myndir allra tíma eða gamanmyndir eða ákveðnar gerðir af leikjum og tónlist.