Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti
Sláðu inn leitarorð

Xiaomi Scooter 3 rafmagnshlaupahjól - Svart

X1050
Xiaomi Scooter 3 rafmagnshlaupahjólið er létt og samabrjótanlegt og er með 25 km/klst hámarkshraða, 30 km drægni, tvöföldu bremsukerfi, góðum öryggisbúnaði og fjölvirku mælaborði.
100 kg burðargeta
Allt að 25 km/klst hraði
Allt að 30 km drægni
Aðeins 13 kg að þyngd
Tvöfalt bremsukerfi
300 W mótor
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

Xiaomi Scooter 3 rafmagnshlaupahjólið er létt og samabrjótanlegt og er með 25 km/klst hámarkshraða, 30 km drægni, tvöföldu bremsukerfi, góðum öryggisbúnaði og fjölvirku mælaborði.

Hönnun
Scooter 3 er með þægilegum handföngum, vegur aðeins 12 kg og hægt er að brjóta það saman. Einnig hefur bremsan þann eiginleika að hlaða rafhlöðuna þegar bremsað er.

Kraftur
Rafmagnshlaupahjólið er 300 W (600 W hámarks kraftur) og með þremur hraðastillingum: Pedestrian Mode 0-5 km/klst, Standard Mode 0-20 km/klst, Sport Mode 0-25 km/klst. Xiaomi 3 er með 30 km drægni.

Tvöfalt bremsukerfi
Með tvöföldu bremsukerfi bremsar þú á öruggan og stuttan máta.

Stærð og þyngd
- 13.2 kg að þyngd
- Hámarks burðargeta: 100 kg
- Stærð brotið saman: 49 x 108 x 4,3 cm

Nokkur atriði sem þarf að passa upp á fyrir fyrstu notkun
- Nauðsynlegt er að athuga loftþrýsting í dekkjum og passa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um þrýsting, en oftast er miðað við 50 psi þrýsting. Ef ekki er nægt loft í dekkjum eykur það verulega líkur á að dekk springi. 
- Farðu vel með rafhlöðuna á hjólinu. Það þarf að hlaða hjólið upp í 100% hleðslu áður en þú notar hjólið í fyrsta skipti. Ákjósanleg notkun á rafhlöðu er að hlaða hana áður en hún tæmist alveg. Einnig skal passa uppá að hlaða hjólið reglulega yfir vetrartímann eða þegar hjólið er ekki í reglulegri notkun til að lengja líftíma rafhlöðunnar.

Rafhlaða
Þegar rafhlaðan fer undir 30% og það hefur ekki verið kveikt á hlaupahjólinu í 10 daga, fer rafhlaðan í "Sleep Mode" til að auka líftíma.
Til að hámarka líftíma rafhlöðu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
- Ekki er mælt með að nota hjólið í mjög miklu frosti og ekki geyma hjólið yfir vetrartímann í óupphituðu húsnæði.
- Hlaða skal hjólið reglulega yfir vetrartímann þegar hjólið er í geymslu.
- Aldrei skal hlaða hjól á afviknum stað – mælt er með hleðslu þar sem umgangur er og hægt að hafa auga með hjólinu. Rafhlaða í hlaupahjólum er stór og öflug og getur stafað af henni eldhætta eins og með aðrar rafhlöður.

Höggskemmdir
Mikilvægt er að fara varlega við notkun á rafmagnshlaupahjólum, en hér eru nokkur dæmi sem geta orsakað höggskemmdir á þeim:
- Þegar keyrt er óvarlega upp á götukanta
- Þegar verið er að stökkva fram af götuköntum og/eða úr hæð (ef höggið er of mikið þá skemmast demparar og stýrið getur skemmst eða brotnað – rafmagnshlaupahjól eru ekki hönnuð til að stökkva á þeim eða gera kúnstir).

Ekki er mælt með því að nota rafmagnshlaupahjólið í rigningu. Passa þarf að hleðslutækið og innstunga séu þurr áður en hjól er sett í hleðslu.

Eiginleikar
Farartæki
Framleiðandi
Xiaomi
Litur
Svartur
Hleðslugeta (mAh)
7650
Hleðslutími (klst)
5,5
Hámarkshraði (km/klst)
25
Hjólastærð (″)
8,5
Vörn (IP staðall)
54
Drægni (km)
30
Burðargeta (kg)
100
Stærð (HxBxD)
114 x 108 x 4,3 cm
Þyngd (kg)
13.2
Strikamerki
6934177728624
Samanburður