ELKOELKO
ELKOELKO

Skilmálar viðskiptareiknings ELKO

Almennt

Greiðsluskilmálar miðast við úttektir líðandi mánaðar og greiðslu 20 dögum eftir lok mánaðar. Viðskiptareikning ber að halda í skilum.

Aðeins lögaðilar geta sótt um viðskiptareikning hjá ELKO. Hægt er að sækja um reikningsviðskipti á https://elko.is/minar/fyrirtaeki.

ELKO áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi við birtingu á heimasíðu ELKO og/eða með tilkynningu til viðskiptamanns með rafrænum hætti, nema annað sé tekið fram.

ELKO áskilur sér rétt til að hafna umsóknum án rökstuðnings.

ELKO áskilur sér rétt til að loka viðskiptareikningi án fyrirvara ef um vanskil eða misnotkun er að ræða.

Skilmálar

Greiðslutímabil miðast við líðandi mánuð.

Gjalddagi er síðasti dagur úttektarmánaðar og eindagi 20 dögum eftir lok tímabils.

Ef greiðsla dregst bætast dráttarvextir við reikningsupphæðina frá gjalddaga.

Athugið að 290 kr. seðilgjald bætist við hvern greiðsluseðil.

Innheimtukostnaður bætist við ef um verulegan greiðsludrátt er að ræða.

Eftir 15 daga greiðsludrátt fer krafa í milliinnheimtu og eftir 50 daga í löginnheimtu.

Viðskiptareikningur er bundinn við ákveðna hámarksfjárhæð. Viðskiptareikningur er bundinn við fyrir fram ákveðna hámarksfjárhæð (lánaramma), sem ELKO ákveður á grundvelli mats á greiðslugetu viðskiptamanns og, eftir atvikum, í samráði við hann.

Við vanskil áskilur ELKO sér rétt til að skrá viðskiptamann á vanskilaskrá í samræmi við gildandi lög og reglur, hafi krafa verið í vanskilum í a.m.k. 40 daga frá eindaga. ELKO áskilur sér rétt til að senda rafræna reikninga og rafræn innheimtuskjöl, m.a. en ekki tæmandi, innheimtuviðvörun á netfang viðskiptavinar, og/eða sem rafræn skjöl í banka.

Ábyrgðir

ELKO er heimilt að leita allra upplýsinga sem fyrirtækið telur nauðsynlegar til að afgreiða umsókn viðskiptamanns, svo sem upplýsinga frá Creditinfo og frá viðskiptabönkum.

Viðskiptamenn ELKO heimila með umsókn sinni allar tilkynningar um vanskil sem hafa varið lengur en 40 daga til Lánstrausts hf.

ELKO kann að fara fram á ábyrgðir sem ELKO telur nauðsynlegar fyrir skilvísar greiðslur úttekta. Þær geta verið í formi sjálfskuldarábyrgðar og/eða bankaábyrgðar.

Viðskiptamaður ber fulla ábyrgð á öllum úttektum sem færðar eru á viðskiptareikning hans og skuldbindur sig til að greiða þær í samræmi við skilmála þessa.

ELKO kann að krefjast trygginga, svo sem sjálfskuldarábyrgðar eða bankaábyrgðar, telji félagið það nauðsynlegt.

Form reikningsviðskipta

Hægt er að kaupa vörur út í reikning með tvennum hætti:

1.     Rafrænar beiðnir:

ELKO tekur eingöngu við rafrænum beiðnum frá Símanum Pay. ELKO getur farið fram á framvísun skilríkja úttektaraðila við afhendingu á vöru. Misnotkun á beiðnabókum viðskiptamanns er að fullu á hans ábyrgð. Ef grunur leikur á að stolnar beiðnir séu í umferð mælir ELKO með að loka viðskiptareikningi.

2.     Skráðir úttektaraðilar:

Aðeins þeir aðilar sem skráðir eru sem úttektaraðilar hafa heimild til úttektar. Viðskiptamaður ber ábyrgð á skráningu og viðhaldi slíkra heimilda. Viðskiptamaður ber fulla ábyrgð á allri notkun reikningsins, þar á meðal misnotkun sem kann að eiga sér stað af hálfu starfsmanna eða annarra aðila með aðgang. Viðskiptamaður skilgreinir úttektaraðila sem mega taka út vörur hjá ELKO. Úttektaraðilar eru krafðir um skilríki við úttekt.

Skráning úttektaraðila og prókúra:

Sá aðili sem hefur prókúru eða aðra heimild til að skuldbinda viðskiptavin við skráningu úttektaraðila telst hafa heimild til slíkrar skráningar. Slík skráning heldur gildi sínu gagnvart ELKO þar til viðskiptavinur hefur tilkynnt um breytingar með sannanlegum hætti og þær hafa verið staðfestar af ELKO. Missi prókúruhafi prókúru eða aðra heimild hefur það ekki áhrif á þær úttektarheimildir sem hann stofnaði til meðan heimild hans var í gildi. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tilkynna tafarlaust um allar breytingar á heimildum, þar á meðal ef prókúruhafi missir heimild sína. Viðskiptamaður skal viðhalda og uppfæra heimildir í gegnum elko.is. ELKO ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að leiða af því að heimildir séu ekki uppfærðar tímanlega.

Persónuupplýsingar og lagalegur fyrirvari

ELKO vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og persónuverndarstefnu félagsins. Með umsókn um viðskiptareikning heimilar umsækjandi ELKO að vinna nauðsynlegar upplýsingar til að meta umsókn og veita þjónustu. Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndarstefnu ELKO. 

Með því að sækja um viðskiptareikning og samþykkja skilmála ELKO veitir umsækjandi ELKO heimild til að vinna þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að afgreiða umsókn og veita umbeðna þjónustu, þar á meðal tölvupóstfang, símanúmer og almennar upplýsingar úr þjóðskrá. Umsækjandi veitir einnig ELKO samþykki fyrir að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu ELKO til markaðssetningar og almannatengsla fyrir ELKO. Umsækjandi getur afturkallað samþykki sitt með því að senda póst á netfangið: elko@elko.is.

Persónuupplýsingar viðskiptamanna eru varðveittar ekki lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar eða samkvæmt lagaskyldu. Allir vinnsluaðilar og samstarfsaðilar ELKO sem koma að vinnslu slíkra upplýsinga hafa gert viðeigandi vinnslusamninga og bundist trúnaði í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um túlkun eða framkvæmd þeirra, þar á meðal vegna innheimtu krafna, skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

v.2.20260407

Stafrænn ráðgjafi ELKO