Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Skilmálar ELKO

Skilmálarnir hér að neðan gilda um kaup neytenda á vöru og þjónustu ELKO.

Meginupplýsingar

Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu ELKO til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Skilmálinn og aðrar upplýsingar á www.elko.is eru einungis fáanlegar á íslensku.
Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

1. Skilgreining

Seljandi er ELKO ehf., kennitala: 561000-3280, virðisaukaskattsnúmer 108151. ELKO ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands.
Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla í Vefverslun ELKO.

2. 30 daga skilaréttur

Kaupandi getur skilað vöru keypt af seljanda innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi en ekki er skilyrði að varan sé ónotuð, að undanskildum nokkrum vöruflokkum. Vörur sem er einungis hægt að skila í óopnuðum umbúðum eru farsímar, leikjatölvur og einnig vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á innan við 30 dögum.

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 30 daga skilarétti.

2.1 Gildir fyrir allar vörur að undanskildum vörum í lið 2.2 og 2.3:
• Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði skilyrði fyrir vöruskilum
• Ekki er skilyrði að varan sé ónotuð
• Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi
• Rekstrarvörur sem fylgja vörunni þarf að endurnýja við vöruskil s.s. blekhylki, einnota rafhlöður, pappír o.s.frv.
• Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum (undanskilið eru b-vörur og stór heimilistæki, kæliskápar, þvottavélar, þurrkarar, frystikistur o.s.frv.)
• Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni (undanskilið eru unaðsvörur)
• ELKO áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra tímamarka
• Endurgreiðsla getur lækkað ef verða breytingar til lækkunar á aðflutningsgjöldum, virðisaukaskatti eða öðrum álögum sem opinberir aðilar leggja á.

2.2 Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum eða innsigluðum umbúðum:
• Farsímar
• Playstation leikjatölvur
• Rekstrarvörur, blekhylki, rafhlöður, pappír, ljósaperur o.s.frv.
• Vörur sem eru keyptar forsniðnar, t.d. ákveðin lengd af snúrum
• DVD myndir, Blu-ray myndir, tónlist, tölvuleikir og hugbúnaður
• Aðrar vörur sem hægt er að afrita eða fullnýta á 30 dögum

2.3 Unaðsvörur
Hefðbundinn 30 daga skilaréttur er á flestum unaðstækjum. Ef viðskiptavinur vill skila vörunni þarf varan að vera hrein, í upprunalegu ástandi og æskilegt að tæki sé í upprunalegum umbúðum. Ef upprunalegar umbúðir eru ekki til skal skila vörunni í innsigluðum poka. ELKO sér til þess að tækið fari í ábyrga förgun. Vörurnar fara ekki í endursölu sem b-vörur.

3. Verðöryggi ELKO

Ef þú finnur vöruna ódýrari í ELKO innan 30 daga frá kaupum getur þú fengið mismuninn endurgreiddan í peningum. Verðöryggi gildir einungis um vörur keyptar í ELKO.

• Gildir eingöngu um verð í verslunum ELKO
• Ábyrgðarskírteini eða kaupnóta skilyrði (eða kaup skráð á kennitölu)
• Mismunur undir 5.000 kr. er endurgreiddur í peningum
• Mismunur yfir 5.000 kr. er endurgreiddur með millifærslu í banka, eða bakfærslu á kreditkort eða greiðsluláni þegar við á
• Gildir ekki ef um er að ræða verðbreytingar vegna breytinga í aðflutningsgjöldum, virðisaukaskatti eða öðrum álögum sem opinberir aðilar leggja á
• Skilyrði er að varan sé til í verslunum ELKO
• Viðskiptavinur hefur 30 daga til að gera kröfu til endurgreiðslu. 30 daga fresturinn miðast við dagsetningu upprunalegu kaupnótu. Hægt er að senda tölvupóst á elko@elko.is með kennitölu kaupanda (og bankaupplýsingar ef á við) og þjónustver ELKO græjar endurgreiðslu vegna verðöryggis ELKO.
• Verðöryggi tekur ekki til vara í boði á tollfrjálsu svæði í verslun ELKO í Flugstöðinni

4. Auglýsingavernd

Ef vara er uppseld á meðan útgefið blað er í gildi þá útvegar seljandi hana innan eðlilegs afhendingartíma eða sambærilega eða dýrari vöru á sama verði. Þetta á ekki við um vörur sem auglýstar eru í "takmörkuðu magni". Vörur á vefsíðu seljanda teljast ekki til auglýstra vara, ennfremur á þetta ekki við um vörur á netverði.

5. Pöntun

Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í skrefi 3.
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

6. Upplýsingar

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
Vöruúrval getur verið mismunandi á milli vefverslunar og verslana.

Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

7. Verð

Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu..
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega (skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Nettilboð gildir eingöngu þegar vara er keypt í vefverslun www.elko.is. Almennt verð sem gildir í verslunum ELKO er birt sem verð áður.

8. Greiðsla

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning. Ef greitt er með greiðslukorti eða skuldfærslu á viðskiptareikning er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 1 klukkustund, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu er pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest af starfsmanni.
Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings.

9. Afhending og seinkun

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands.

Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvöru ef að varan er uppseld.

Ef óskað er eftir að geyma ósótta vöru í vöruhúsi ELKO er geymslutími að hámarki 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar.

10. Yfirferð á vörum

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,.
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.
Afþreyingarefni er undanskilið 30 daga athugunartíma. Seljandi ráðleggur kaupanda afþreyingarefnis að athuga hvort geisladiskar hafi losnað í pakkningum í flutningum. Þetta getur komið upp vegna lélegra hulstra og veldur rispum á diskum. Ef að ELKO metur að rispurnar séu vegna flutnings getur kaupandi skipt slíkum vörum umsvifalaust út sé þeim skilað eða tjónið tilkynnt innan 2 daga frá móttöku kaupanda. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna beiðni um vöruskil umfram þann tíma hafi innsigli verið rofið.

11. Réttur við galla eða vöntun

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Réttur neytenda (með neytenda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
Um galla á afþreyingarvörum s.s. DVD og tölvuleikjum er algjört skilyrði að miðillinn sem efnið er á sé hreinn og órispaður. Seljandi fríar sig allri ábyrgð ef miðill er skemmdur eða rispaður.

12. Ábyrgð

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan atvinnustarfsemi. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsettningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.

Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. En almennur kvörtunarfrestur er 2 ár. Til að mynda er rafhlaða tækja rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Framleiðandi veitir þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum (sýna þarf fram á að um galla sé að ræða sé varan eldri en 6 mánaða en ekki t.d eðlilegt slit.) Eðlilegt er að endurnýjun geti átt sér stað bilinu 6-24 mánaða. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skvt. 10. grein þessa skilmála. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum (hlutum sem hafa áhrif á eiginleika tækisins eins og vírusar og annað sem ekki er hægt að rekja til framleiðanda).

Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram.

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Kaupanda er sérstaklega bent á viðbótartryggingar sem í boði eru í verslunum ELKO til að forðast háan viðgerðarreikning eða jafnvel endurnýjun tækis ef að eitthvað skyldi koma upp á. Sjá nánari skilmála viðbótartryggingar undir viðbótartrygging
Seljandi og kaupandi semja sérstaklega um viðbótatryggingu og þarf að taka það sérstaklega fram á reikning.

Sjá nánar um Ábyrgð hér.

13. Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Smelltu hér til að skoða skilmála ELKO um notkun á vafrakökum.

14. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

15. Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu.. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

16. Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á elko@elko.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun ELKO til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsíma ELKO þar sem honum verður vísað á réttan stað.

Samanburður