ELKOELKO
ELKOELKO

Viðbótartrygging ELKO

Viðbótartrygging ELKO nær yfir það sem heimilistryggingin eða ferðatryggingin tryggir ekki. Það skiptir ekki máli hvort óhapp á sér stað heima eða á ferðalagi, viðbótartryggingin gildir um allan heim. Sé skemmdin eða óhappið tryggt af tryggingafélaginu þínu þá borgar viðbótartryggingin sjálfsábyrgðina.

Skjátrygging fyrir farsíma

Þín trygging ef óhapp verður

Hefur þú lent í því að missa símann og sjárinn á honum brotnar? Nú bjóðum við upp á skjátryggingu fyrir farsíma sem tryggir skjáinn á nýja símanum þínum fyrir óvæntum óhöppum.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um skjátryggingu

Viðbótartrygging

Tryggir það sem aðrir tryggja ekki

  • Eitt gjald

  • Enginn aukakostnaður

  • Engin sjálfsábyrgð

  • Tryggingartími lengri en ábyrgðartími

  • Trygging gegn ófyrirséðum óhöppum eða bilunum

  • Trygging fyrir öllum tjónum sem hafa áhrif á notkun tækisins

  • Trygging sem fylgir tækinu við eigendaskipti

  • Engin afföll eða afskriftir vegna notkunar

  • Trygging tekur strax gildi

Af hverju ættir þú að fá þér viðbótartryggingu?

Viðbótartryggingin nær yfir það sem heimilistryggingin eða ferðatryggingin tryggir ekki.
Það skiptir ekki máli hvort óhapp á sér stað heima eða á ferðalagi, viðbótartryggingin gildir um allan heim.
Sé skemmdin eða óhappið tryggt af tryggingafélaginu þínu þá borgar viðbótartryggingin sjálfsábyrgðina.

Hvort sem um er að ræða:

  • Óhöpp*

  • Þjófnað**

  • Eldingar eða yfirspennu

  • Raka

  • Framleiðslugalla 

*Viðbótartryggingin bætir skemmdir sem hafa áhrif á virkni tækis af völdum óhappa og
vegna skyndilegra óvæntra ytri atburða, sjá grein 3.1 og 3.2 í skilmálunum.
**Viðbótartryggingin bætir tjón sem verður vegna innbrota á heimili þitt, í sumarbústað
eða á skrifstofuna þína, sjá lið 3.3 í skilmálunum. 

Varðst þú fyrir tjóni? 

Fylltu út þessa tjónaskýrslu og hafðu samband við Tryggingamiðlun Íslands í síma 553-6688. Tryggingafélagið tekur málið í sínar hendur og heyrir í þér innan tveggja virkra daga. Ef tryggingarbeiðnin er samþykkt verður tækið þitt flutt á viðurkennt verkstæði eða skipt út fyrir sambærilegt tæki.

Mundu eftir kaupnótunni! Þú getur núna nálgast nóturnar þínar á www.elko.is/minar.

Smelltu hér til að sjá upplýsingablað vátryggingarvöru.

Skilmálar

Smelltu hér til að skoða skilmála fyrir viðbótartryggingu.

Um tryggingasala

Um tryggingasala Viðbótatrygging er seld í umboði fyrir Trygg-Hansa sem er einn stærsti tryggingarsali á Norðurlöndum. Trygg-Hansa Försäkring, 106 26 Stockholm, org.nr. 516403-8662, útibú frá Tryg Forsikring A/S, CVR-nr 24260666, Klausdalsbrovej 601, DK-2750 Ballerup, Denmark.