Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Viðbótartrygging ELKO

Viðbótartrygging ELKO nær yfir það sem heimilistryggingin eða ferðatryggingin tryggir ekki. Það skiptir ekki máli hvort óhapp á sér stað heima eða á ferðalagi, viðbótartryggingin gildir um allan heim. Sé skemmdin eða óhappið tryggt af tryggingafélaginu þínu þá borgar viðbótartryggingin sjálfsábyrgðina.

Viðbótartrygging

Tryggir það sem aðrir tryggja ekki

  • Eitt gjald

  • Enginn aukakostnaður

  • Engin sjálfsábyrgð

  • Tryggingartími lengri en ábyrgðartími

  • Trygging gegn ófyrirséðum óhöppum eða bilunum

  • Trygging fyrir öllum tjónum sem hafa áhrif á notkun tækisins

  • Trygging sem fylgir tækinu við eigendaskipti

  • Engin afföll eða afskriftir vegna notkunar

  • Trygging tekur strax gildi

Af hverju ættir þú að fá þér viðbótartryggingu?

Viðbótartryggingin nær yfir það sem heimilistryggingin eða ferðatryggingin tryggir ekki.
Það skiptir ekki máli hvort óhapp á sér stað heima eða á ferðalagi, viðbótartryggingin gildir um allan heim.
Sé skemmdin eða óhappið tryggt af tryggingafélaginu þínu þá borgar viðbótartryggingin sjálfsábyrgðina.

Hvort sem um er að ræða:

  • Óhöpp*

  • Þjófnað**

  • Eldingar eða yfirspennu

  • Raka

  • Framleiðslugalla 

*Viðbótartryggingin bætir skemmdir sem hafa áhrif á virkni tækis af völdum óhappa og
vegna skyndilegra óvæntra ytri atburða, sjá grein 3.1 og 3.2 í skilmálunum.
**Viðbótartryggingin bætir tjón sem verður vegna innbrota á heimili þitt, í sumarbústað
eða á skrifstofuna þína, sjá lið 3.3 í skilmálunum. 

Varðst þú fyrir tjóni? 

Fylltu út þessa tjónaskýrslu og hafðu samband við Tryggingamiðlun Íslands í síma 553-6688. Tryggingafélagið tekur málið í sínar hendur og heyrir í þér innan tveggja virkra daga. Ef tryggingarbeiðnin er samþykkt verður tækið þitt flutt á viðurkennt verkstæði eða skipt út fyrir sambærilegt tæki.

Mundu eftir kaupnótunni! Þú getur núna nálgast nóturnar þínar á www.elko.is/minar.

Um tryggingasala

Moderna Försäkringar eru leiðandi á markaði fyrir vörutryggingar. Áralöng reynsla af tryggingasölu og þjónustu ásamt góðum þjónustuaðilum gerir okkur kleift að hjálpa þér. Viðbótatrygging er seld í umboði fyrir Moderna sem er einn stærsti tryggingarsali á Norðurlöndum með yfir 2.8 milljónir viðskiptavina. Moderna Försäkringar er hluti af Trygg-Hansa Försäkring, 106 26 Stockholm, org.nr. 516403-8662, útibú frá Tryg Forsikring A/S, CVR-nr 24260666, Klausdalsbrovej 601, DK-2750 Ballerup, Denmark.

Skjátrygging fyrir farsíma

Þín trygging ef óhapp verður

Hefur þú lent í því að missa símann og sjárinn á honum brotnar? Nú bjóðum við upp á skjátryggingu fyrir farsíma sem tryggir skjáinn á nýja símanum þínum fyrir óvæntum óhöppum.

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um skjátryggingu
Samanburður