Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

ElkoElko
ElkoElko

Ecovadis er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í sjálfbærnimati á fyrirtækjum

ELKO hefur síðastliðin ár aukið áherslu á umhverfismál og sjálfbærni til muna og má þar nefna verkefni eins og Eitthvað fyrir ekkert þar sem snjalltæki eru keypt af viðskiptavinum og komið í ábyrgt endurvinnsluferli, endurvinnsluskápa í öllum verslunum og verkefni tengd lengingu líftíma raftækja. Í gegnum vörumerkjasamning við ELKJOP samstæðuna á Norðurlöndunum hefur ELKO nú bætt við alþjóðlegu vottunarkerfi EcoVadis við vöruuppýsingar á elko.is.

EcoVadis er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki sem vinnu kerfisbundið að því að votta fyrirtæki fyrir sjálfbærnivinnu þeirra sem samanstendur af frammistöðu þeirra á umhverfi, siðferði og samfélagslegri ábyrgð. EcoVadis fylgist með birgjum ELKJOP og metur starfshætti þeirra árlega til að tryggja að vara sé framleidd á sjálfbæran og siðferðislegan hátt við góðar umhverfis- og vinnuaðstæður.

Hvernig veistu að varan sem þú kaupir er framleidd á ábyrgan hátt?

ELKJOP hefur sett strangar kröfur á að allir birgjar þeirra tryggi að tekið sé tillit til loftlags, umhverfis og fólksins þegar kemur að framleiðslu á þeim vörum sem eru í vöruúrvali ELKJOP. EcoVadis sjálfbærnimatið er nýtt til þess að fylgjast með stöðu birgja þegar það kemur að þessum lykilþáttum við framleiðslu á vörum og er niðurstaðan birt opinberlega á vefsíðum félagsins.  

EcoVadis framkvæmir sjálfstætt mat á birgjum ELKJOP byggt á fjórum sviðum sjálfbærni:

  • Umhverfi

  • Mannréttindi

  • Siðferði

  • Innkaup

Ecovadis stigagjöfin

Hvert og eitt fyrirtæki fær einkunn út frá matinu og fær EcoVadis medalíu út frá hversu hátt það skorar. Hæsta einkunn veitir Platínum, þar á eftir kemur gull, silfur og brons. Stigagjöfin er byggð á því hvernig fyrirtæki standa sig í sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð miðað við aðra birgja.

  • Platínum: Fyrirtæki sem eru í efsta 1% (99%+). Þetta táknar hæsta stig sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar.

  • Gull: Fyrirtæki í efstu 5% (95%+). Þessi fyrirtæki sýna mjög góða frammistöðu í sjálfbærni, en ekki toppeinkunn á öllum sviðum.

  • Silfur: Fyrirtæki í efstu 15% (85%+). Þessi fyrirtæki standa sig vel en eiga enn möguleika á að bæta sig.

  • Brons: Fyrirtæki í efstu 45% (65%+) . Þetta þýðir að fyrirtæki fylgi sjálfbærniviðmiðum en margt sem hægt er að gera betur og rými fyrir bætingar.

Samanburður